Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Honum hlýtur dreyma vel

þessum andskota...

Hér hef ég legið í rúminu í allan dag með hausverk og vanlíðan.. Þegar maður sér fram á að fá ekki einu sinni fyrir reikningunum  eða leigunni hvað þó að eiga ofan í sig eða dótturina að borða um jólin.

 

Hvað þá á maður bara að brosa.. Nei það get ég ekki.... fyrir utan að nú vill bankinn að ég útfylli pappíra til að fá þessar skíta krónur mínar færðar á milli.. Ég get bara ekki séð að það taki því..

Svo gefa þeir þessu viku -10 daga og hvað þá .. Leigan verður komin í lögfræðing þá...

Er eitthvað skrítið að maður sé langt niðri núna...

Veit ekkert hvenar ég verð hér næst... Eigið góð jól... Kveðja frá Esbjerg ... Dóra


mbl.is Ráðist inn í Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er frábært framtak

Frábært hjá þeim á Þerney RE. Sýnir að það er til fólk sem ert til í að hjálpa þeim sem þurfa á því að halda. Mæðrastyrksnefnd á þetta svo sannarlega skilið að það sé stutt við bakið á þeim.. Þessar konur sem vinna þarna vinna sko gott starf.

 

Eigið góða dag.. Kveðja Dóra


mbl.is Gáfu Mæðrastyrksnefnd ferðasjóðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Get nú bara .....

vel trúað þessu... Bara ekki allir sem segja frá þegar þeir lenda í svona viðskiptum... Veit að ég hefði orðið brjál... og hefði bara ekki farið út ..úr búðinni... Hefðu þurft að hringja í lögguna til að fjarlæga mig ... Nei svona léti Dóra ekki bjóða sér..

kærleiksknús inn í daginn Dóra Dk Heart


mbl.is Neitað um viðskipti í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavík bara orðin glæpaborg norðursins...

Maður þorir ekki að koma heim allt orðið vitlaust ... 

Ef fólk er ekki að stinga hvert annað eða slá ... nú þá er bara að kveikja í húsi eða bíl... er allt að verða virkilega vitlaust þarna í höfuðborg norðursins... ?

Maður gæti orðið stungin niður eða rændur á næsta götuhorni Crying

Mig undrar ekki þó fólk verði vitlaust á öllu því sem á undan er gengið..  eitthvað hlýtur að klikka það er bara þannig Crying  Fólk heldur ekki endalaust út W00t

Kveðja frá Dk Dóra Heart


mbl.is Líkamsárás við Hlemm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir að kjósa á föstudaginn

Við gefum okkar manni auðvita atkvæði okkar það er ekki spurning

 Sjáið hvað þetta er flott hjá honum.. Grin Og skrúfa vel upp í græjunum !

 

http://programmer.tv2.dk/allstars/video/index.php/nodeId-18042322.html

 


mbl.is Í úrslit í dönskum sjónvarpsþætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er mann auminginn ekki stoppaðu ?

 Tekið af www.dv.is

Ómar Ragnarsson, fimmtugur Íslendingur búsettur í Noregi, var dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir að reyna að nauðga tíu ára barni. Ómar hefur ítrekað reynt að nauðga börnum og notar jafnan hníf við ódæðið. Hann hefur hlotið dóm fyrir tvær nauðganir á ungum stúlkum á Íslandi. Norskir fjölmiðlar telja að Ómar sé tengdur fleiri barnamisnotkunarmálum þar í landi.

Samkvæmt norskum dómsskjölum er Ómar margdæmdur nauðgari og níðingur. Hann var aðeins tuttugu ára þegar hann fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir tvær nauðganir á Íslandi. Í báðum tilfellum notaði Ómar hníf til að hóta og hræða fórnarlömb sín. Fyrsta fórnarlamb hans var fjórtán ára gömul stúlka. Hin stúlkan var aðeins tólf ára og þótti sú nauðgun sérlega hrottaleg.

Aðeins tvær stúlkur hafa sloppið frá Ómari. Ein á Íslandi, aðeins þrettán ára gömul, og sú norska sem er tíu ára. Norskur sálfræðingur og réttargeðlæknir telja að Ómar sé líklegur til að fremja kynferðisbrot aftur. Auk þessara brota hefur Ómar hlotið tvo dóma fyrir ölvunarakstur og sat í fangelsi í þrjá mánuði fyrir þjófnað.

Ómar hafði búið í Stafangri síðustu sjö ár en hann hefur flakkað á milli Íslands og Noregs undanfarin þrjátíu ár. Hann giftist norskri eiginkonu sinni á Íslandi og eiga þau tvö börn. Eina stúlku sem er sautján ára og annað barn sem er uppkomið.

Þetta er með ólíkindum hvað svona menn komast upp með.. þvílíkt ógeð..

Hvað fær hann að skemma marga einstaklinga áður en eitthvað gerist ?

 

kveðja Dóra

Þetta er stór ?

Þegar stórt er spurt ...  stór spurning ?    Blush Eigum við að vera eins og allir hinir?Undecided

Eða eigum við að vera við sjálf  ? Grin Og hugsa eins og Íslendingum sæmir ;)LoL

Kærleiksknús Dóra Esberg Dk Heart


mbl.is Bretland sömu leið og Ísland?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinur í grennd

Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,

í víðáttu stórborgarinnar.

En dagarnir æða mér óðfluga frá

og árin án vitundar minnar.


Og yfir til vinarins aldrei ég fer

enda í kappi við tímann.

Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,

því viðtöl við áttum í símann.


En yngri vorum við vinirnir þá,

af vinnunni þreyttir nú erum.

Hégómans takmarki hugðumst við ná

og hóflausan lífróður rérum.


“Ég hringi á morgun”, ég hugsaði þá,

“svo hug minn fái hann skilið”,

en morgundagurinn endaði á

að ennþá jókst mill´
okkar bilið.


Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,

að dáinn sé vinurinn kæri.

Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,

að í grenndinni ennþá hann væri.


Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd

gleymd´ ekki, hvað sem á dynur,

að albesta sending af himnunum send

er sannur og einlægur vinur

Kærleiksknús Dóra Heart


Komin nýr dagur

og hvað skildi hann bera í skauti sér.. ?

Við fengum jú lánið svo á eftir að sjá hvað á eftir að gerast.

Dóttir mín er stundum svo fyndinn þegar hún svarar mér.. Og ég algjör púki þegar ég fer að stríða henni. GetLost

Í morgun kem ég inn í stofu þar sem hún er að borða morgunmatinn.

Ég kem í jólainniskónum hennar sem eru 2 jólasveinar.. Og segi við hana hérna þú mátt fá Geir og Davíð.. W00t Hvað ??? Eru bara 2 jólasveinar á Íslandi ? Grin Nei, nei segi ég við hana þú veist að þeir eru 13 .. já þá getur annar verið númer 1 og hinn númer 13.

Hér er rok og rigning .. öll ljós kveikt til að fá nóga birtu svo maður geti haldið haus í dag.

Ég er í vandræðum með tölvuna hjá mér.. Nú fæ ég ekki JAVA inn ... það er svo mikil vitleysa í tölvunni minni að ég bíð bara eftir að hún hrynji... eins og Ísland....

Það á örugglega eftir að gerast fyrir jól... Því ég er örugglega óheppnasta manneskja sem uppi hefur verið fyrr og síðar.. En ég er svo vön að ég hrekk ekkert upp við það lengi.. Þetta venst allt saman..LoL

Annars er ég búin að gera mér svona áætlun sem ég ætla að reyna að standa við og það er að taka til lítið á hverjum degi.. Búin að setja þetta niður á daga .. nú er bara að standa við það..

Besta leiðin er auðvita að fá einhvern í kaffi og vera þá búin.. það ýtir á eftir mér það er sko á hreinu.

Hvað gerið þið þegar þið hafið ykkur ekki í hlutina.. ?

Knús og kærleikur inn í daginn Dóra Heart


Nú sit ég hér

og er að fyllast af kvefi hausverk og öllum pakkanum.. ojjjjj Held að hún dóttir mín hafi smitað mig Crying

Ég sit líka hér og bíð þess hvað morgundagurinn ber í skauti sér ?Undecided

Nú fer krónan á flot aftur.. Held reyndar að hún geti bara ekki verið verri... því þá ætti bara að lýsa landi gjaldþrota.. Ég er líka hissa að ef  þetta lán fæst fyrir Ísland og sömu menn eiga að fá að ráðstafa þessum peningum. Þá er ég mjög hissa.

Mennirnir sem settu allt í pappírstætarann... Skulda jú ekkert núna...

Ef þetta væri ekki litla góða Ísland heldur í Asíu eða Afríku þá væri búið að fremja valdarán.

Ég er að heyra frá fólki sem er farið af landi brott skilur bara allt eftir og byrjar á núlli í öðru landi..

Ekki spurning ef ég væri í þeirri stöðu í dag þá mundi ég bara láta mig hverfa.. hvert ? já það er spurning ?

Fyrir 2 vikum ca hringdi hér blaðakona og ætlaði svo að hringja aftur þar sem ég hafði ekki tíma fyrir hana .. Hún hefur ekki látið í sér heyra.. Svo hver veit nema að það sé komið á okkur fjölmiðlabann.

Annars er bara kalt í Danmörku og það gengur á með roki,myrkri og rigningu.. Ekkert svona óska veður .. Því þetta myrkur fer alveg með mig...

En nú er að krossa fingur um að eitthvað   gerist á morgun.. og þá GOTT !

Nú ef það eru að koma jól.. Börnin mín eru að koma eftir 30 daga.

Kærleikskveðjur Dóra Esbjerg Danmörku Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband