Af hverju er mann auminginn ekki stoppaðu ?

 Tekið af www.dv.is

Ómar Ragnarsson, fimmtugur Íslendingur búsettur í Noregi, var dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir að reyna að nauðga tíu ára barni. Ómar hefur ítrekað reynt að nauðga börnum og notar jafnan hníf við ódæðið. Hann hefur hlotið dóm fyrir tvær nauðganir á ungum stúlkum á Íslandi. Norskir fjölmiðlar telja að Ómar sé tengdur fleiri barnamisnotkunarmálum þar í landi.

Samkvæmt norskum dómsskjölum er Ómar margdæmdur nauðgari og níðingur. Hann var aðeins tuttugu ára þegar hann fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir tvær nauðganir á Íslandi. Í báðum tilfellum notaði Ómar hníf til að hóta og hræða fórnarlömb sín. Fyrsta fórnarlamb hans var fjórtán ára gömul stúlka. Hin stúlkan var aðeins tólf ára og þótti sú nauðgun sérlega hrottaleg.

Aðeins tvær stúlkur hafa sloppið frá Ómari. Ein á Íslandi, aðeins þrettán ára gömul, og sú norska sem er tíu ára. Norskur sálfræðingur og réttargeðlæknir telja að Ómar sé líklegur til að fremja kynferðisbrot aftur. Auk þessara brota hefur Ómar hlotið tvo dóma fyrir ölvunarakstur og sat í fangelsi í þrjá mánuði fyrir þjófnað.

Ómar hafði búið í Stafangri síðustu sjö ár en hann hefur flakkað á milli Íslands og Noregs undanfarin þrjátíu ár. Hann giftist norskri eiginkonu sinni á Íslandi og eiga þau tvö börn. Eina stúlku sem er sautján ára og annað barn sem er uppkomið.

Þetta er með ólíkindum hvað svona menn komast upp með.. þvílíkt ógeð..

Hvað fær hann að skemma marga einstaklinga áður en eitthvað gerist ?

 

kveðja Dóra

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Dóra mín, það á að vana svona ógeð og það strax, ég held að svona menn séu ólæknanlegir, þeir hætta aldrey.

Kærleikur til þín

Kristín Gunnarsdóttir, 24.11.2008 kl. 11:09

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er bara hreinasti hyrllingur og með öllu óskiljanlegt að það sé ekki hægt að stoppa svona framferði. 

Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 24.11.2008 kl. 11:28

3 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Gelda þá.  Loka þá svo búri og kasta lyklinum.    Kveðja til þín Dóra mín.

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 24.11.2008 kl. 11:31

4 Smámynd: Dóra

Já stelpur mínar þetta er bara ógeðslegt.. Maður bara skilur ekki að þessi maður eigi börn og að svona sé ekki stoppað.

Ég verð svo reið þegar ég sé svona að það síður á mér.. Enda hef ég ástæðu til.. sem ég ætla ekki að fara út í hér á opnum vef.

Takk elskurnar fyrir innlitið .. Veit að ég er ekki alveg að standa mig að kvitta en er alltaf að reyna að bæta úr því.. kærleiksknús Dóra

Dóra, 25.11.2008 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband