Vinur í grennd

Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,

í víðáttu stórborgarinnar.

En dagarnir æða mér óðfluga frá

og árin án vitundar minnar.


Og yfir til vinarins aldrei ég fer

enda í kappi við tímann.

Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,

því viðtöl við áttum í símann.


En yngri vorum við vinirnir þá,

af vinnunni þreyttir nú erum.

Hégómans takmarki hugðumst við ná

og hóflausan lífróður rérum.


“Ég hringi á morgun”, ég hugsaði þá,

“svo hug minn fái hann skilið”,

en morgundagurinn endaði á

að ennþá jókst mill´
okkar bilið.


Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,

að dáinn sé vinurinn kæri.

Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,

að í grenndinni ennþá hann væri.


Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd

gleymd´ ekki, hvað sem á dynur,

að albesta sending af himnunum send

er sannur og einlægur vinur

Kærleiksknús Dóra Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Elsku Dóra  Fallegt og rörandi ljóð. taka vara á vinum síum. öll þurfum við vini. Þakk fyrir að birta þetta kæra. Kærleikskveðja til þín.               Mvh Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 20.11.2008 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband