Komin nýr dagur

og hvað skildi hann bera í skauti sér.. ?

Við fengum jú lánið svo á eftir að sjá hvað á eftir að gerast.

Dóttir mín er stundum svo fyndinn þegar hún svarar mér.. Og ég algjör púki þegar ég fer að stríða henni. GetLost

Í morgun kem ég inn í stofu þar sem hún er að borða morgunmatinn.

Ég kem í jólainniskónum hennar sem eru 2 jólasveinar.. Og segi við hana hérna þú mátt fá Geir og Davíð.. W00t Hvað ??? Eru bara 2 jólasveinar á Íslandi ? Grin Nei, nei segi ég við hana þú veist að þeir eru 13 .. já þá getur annar verið númer 1 og hinn númer 13.

Hér er rok og rigning .. öll ljós kveikt til að fá nóga birtu svo maður geti haldið haus í dag.

Ég er í vandræðum með tölvuna hjá mér.. Nú fæ ég ekki JAVA inn ... það er svo mikil vitleysa í tölvunni minni að ég bíð bara eftir að hún hrynji... eins og Ísland....

Það á örugglega eftir að gerast fyrir jól... Því ég er örugglega óheppnasta manneskja sem uppi hefur verið fyrr og síðar.. En ég er svo vön að ég hrekk ekkert upp við það lengi.. Þetta venst allt saman..LoL

Annars er ég búin að gera mér svona áætlun sem ég ætla að reyna að standa við og það er að taka til lítið á hverjum degi.. Búin að setja þetta niður á daga .. nú er bara að standa við það..

Besta leiðin er auðvita að fá einhvern í kaffi og vera þá búin.. það ýtir á eftir mér það er sko á hreinu.

Hvað gerið þið þegar þið hafið ykkur ekki í hlutina.. ?

Knús og kærleikur inn í daginn Dóra Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Dóra mín, takk fyrir gott símtal eins og venjulega. Vonandi fer óhepnin að hverfa hjá þér, komin tími til. Þetta með að koma sér í gang, ég hef ekki ráð við því, einfaldlega vegna þess að ég kem mer ekki að neinu nema því allra nauðsynlegasta.

Kærleikur til þín

Kristín Gunnarsdóttir, 20.11.2008 kl. 08:27

2 Smámynd: Líney

knús  inní nýjan dag

Líney, 20.11.2008 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband