20.11.2008 | 14:20
Vinur í grennd
Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.
Ég hringi á morgun, ég hugsaði þá,
svo hug minn fái hann skilið,
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst mill´
okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymd´ ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur
Kærleiksknús Dóra
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Elsku Dóra Fallegt og rörandi ljóð. taka vara á vinum síum. öll þurfum við vini. Þakk fyrir að birta þetta kæra. Kærleikskveðja til þín. Mvh Sirrý
Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 20.11.2008 kl. 22:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.