3.1.2009 | 08:28
Laugardagurinn lofar góðu
Við mæðgur vorum ákveðnar í því gær að fara snemma að sofa og snúa sólahringnum við svo við fórum heldur betur snemma að sofa í gærkveldi.. Eða kl 21:30 og vöknuðum svona hressar í morgun.
Enda verðum við að taka á því með svefninn þegar skólinn er að byrja á mánudaginn.
Við horfðum saman á mynd áður og höfðum það huggulegt.Auðvita varð fyrir valinu Íslensk mynd.
En hún var líka þreytt þar sem hún fór með vinkonu sinni á skauta hér á torginu í gær
En ég fór að vinna.
Torgið fær að vera svona fram í febrúar hjá okkur en þá verður það eðlilegt aftur og ekkert hægt að skauta.
Við ætlum svo að skreppa í bæinn í dag og svo kemur þessi elska með mömmu sinni til slátrarans og svo er ætlunin að skreppa í sund ef tími verður til.
Verður maður ekki að sinna litla unganum svona síðustu dagana í jólafríinu.
Mér var líka boðið að vinna á morgun og þigg ég það sko með þökkum enda veitir ekki af .
Er búin að fá að vita að það stefnir í heimferð um páskana en það er komið að fermingu elsta barnabarns sem verður fermdur á Íslandi. Svo þá getur maður leift sé að fara til Íslands svona ef flugfélögin verða ekki komin á hausinn.
Maður er svona að spá í hvort maður á að þora að taka sénsinn með að panta í tíma eða bíða eftir tilboði. Held að ég bíði eftir tilboði.
Annars voru áramótin frábær hjá okkur ..höfðum við Ísl lambalæri á borði sem börnin mín færðu mér og voru hér góðir Íslendingar með sjálfan sig og börnin.. bættist svo í hópinn ung kona frá Indlandi með sína dóttir svo það varð líf og fjör á bænum.
Það komust allir heilir frá þessum áramótum sem betur fer.
Nú er bara að ganga fullur bjartsýnar inn í árið 2009 enda dugar ekkert annað.
Hafið góðan dag elskurnar mínar kærleikskveðjur hér frá Danmörku Dóra
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Yndislegt að alt hefur gengið vel hjá ykkur og frábært að þú skulir skreppa "heim" um páskana. Kærleikur til þín Dóra mín
Kristín Gunnarsdóttir, 3.1.2009 kl. 08:41
Allt hefur gwengid svona vel.Torgid ædislegt.Skil bara ekki rádamenn í mínum bæ ad útbúa ekki svona skautasvell.Elska ad fara á skauta.Kannski getur madur enntá stadid .Langt sídan sjádu.
Skodadu verdid núna hjá flugfelögunum ef tad er ódýrt tá skelltu tér á tad annars bíduru.
Kvedja frá Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 3.1.2009 kl. 08:48
Frábært að hafa svona skautasvell. Við erum með 1 hér í SDB.
Kærar kveðjur frá AlsGuðrún Þorleifs, 3.1.2009 kl. 11:59
Kúl, mann langar eiginlega orðið að flytja frá skerinu
Arinbjörn Kúld, 3.1.2009 kl. 12:31
já alveg yndislegt bara segið heim ég er bara rétt að hugsa þetta finnst þetta eins og fjarlægður draumur... Já væri sko meira en til í hitting...
Guðrún þú veðrur að fara og tala við þá og fá svona svell
Halló frændi frábært að sjá þig hér... já skellir þú þér ekki bara upp í næstu vél og kemur með frænku á skauta... músík og allt..
Já alveg eins og í draumalandi þessi mynd ..en þetta er svo flott.. og gaman hjá öllum..
Takk elskurnar fyrir kvittið... Búin að eiga alveg yndislega dag... kærleikur frá mér Dóra
Dóra, 3.1.2009 kl. 18:21
Elsku Dóra alveg er þetta frábært torg hjá ykkur,þetta er eitthvað svo ævintýralegt tek undir með Helgu stefnum á hitting um páskana kærleiksknús og klem á þig og þína
Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 3.1.2009 kl. 23:50
Flott skautasvell. Hérna úti fyrir glugganum mínum hef ég Lappkärret og þar eru börn og fullorðnir að leik svo lengi sem ljósmagnið leyfir. Kuldinn fór i -13°C í dag svo ísinn heldur. :) Bestu nýárskveðjur frá Stokkhólmi.
Baldur Gautur Baldursson, 4.1.2009 kl. 10:34
Æðislega falleg myndin af torginu, þetta minnir mann á svona gamaldagsbæ.
Knús á þig og þína
Helga skjol, 4.1.2009 kl. 16:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.