3.12.2008 | 07:50
Fréttir af mér
Hef ákveðið að blogga hér smá... Ég er búin að vera voðalega utan við mig ... geri hlutina ekki rétt og geri mörg mistök..
Svona er þetta bara þegar maður hugsar og hugsar hvað maður á til bragðs að taka til að eiga ofan í sig og börnin sín um jólin ..og finna enga leið. Maður gat þó leitað sér hjálpar á Íslandi. sumir segja bara hvað komdu bara heim ef þetta er svona rosalegt... Bíðið nú við það tekur okkur 3-6 mánuði að öðlast okkar réttindi aftur og svo þarf maður jú að eiga fyrir farinu ekki satt.
Mér skilst að það hafi sótt um 500 manneskjur hér hjá hjálparsamtökum í Esbjerg. Og það fá örugglega margir neitun.
Kristín mín í Vejle fékk neitun og mér finnst að fjölskyldan hennar ætti að taka sig saman og leggja þó það væri ekki nema 1000 kr á haus til að hjálpa henni.
Hér er númerið hennar Kristínar og kennitala... 0324 - 26 - 007467 Kt: 271251 - 4599
Fjölskyldur og vinir eiga jú að standa saman ekki satt ?
Ég hef miklar áhyggjur af henni líka.
Gengið er alveg rosalegt núna svo 390 dkr eru rétt um 10,000 ísk núna þegar þetta er skrifað...
En að því góða... Eins og þið sem mig þekkið þá vitið þið að ég gefst ekki upp fyrr en ég ligg dauð....Svoleiðis er það bara...
Nú ég er búin að fá vinnu við að þrífa hjá slátrara í 1 tíma og 45 mín 6 daga vikunnar..Má byrja á mánudaginn og var ráðin án þess að hún sæi mig ... Enda góð vinkona hér sem reddaði mér þessari vinnu. Tek það fram að það er ekki svört vinna.. Alveg hvít ! Nú er það bara spurning hvort bakið á mér klári það. Og ef vel heppnast þá get ég eflaust fengið meiri vinnu..
En þetta kostar líka að ég þarf að vinna þegar börnin mín koma hingað um jólin...
En eins og þið sjáið fékk ég þessar 2 myndalegu skrúfur í bakið á mér í mars... sem hefur kostað að ég er farin að ganga öðruvísi og líkaminn er að aðlagast þessu öllu.
Nú ég verð bara að taka á honum stóra mínum og fá mér verkjatöflur hjá lækninum.. Er sem betur fer að borga lítið fyrir lyfin mín.
Svo er að reyna að koma sér upp úr lægðinni og reyna að halda augum opnum.. Verst er að sjónin er alveg að fara með mig er farin að sjá svo illa... Það er bara seinna tíma vandamál...
knús inn í daginn frá mér til ykkar allra.. Dóra Esbjerg Dk
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 07:55 | Facebook
Athugasemdir
Sæl Dóra .
Frábær pistill hjá þér.Í hreinsskilni er þetta bakið á þér og þú ert að fara að vinna hjá slátrara.
þú átt að fá Bókmenntalaun Norðulandaráðs fyrir þennan pistil.
Gangi þér sem best.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 07:54
Jú jú Þórarinn þetta er bakið á mér... Já og ég er að fara að vinna hjá slátrara... Hvað á maður að gera.. ? Takk fyrir innlegg þitt. kærleikskveðja Dóra
Dóra, 3.12.2008 kl. 07:56
Já Ruslana mín ... Vei ég vel... Kristín er hún englilstína sem er bloggvinur minn... hér á síðunni... til hægri ------>
Risaknús og takk fyrir þitt innlegg Dóra
Dóra, 3.12.2008 kl. 08:15
Takk fyrir að gera þetta. Þú ert ekkert í betri sporum en ég. Til hamingju með vinnuna en farðu ofsalega vel með þig, þetta er örugglega ekki létt vinna hjá slátraranum. Kærleikur til þín elsku Dóra
Kristín Gunnarsdóttir, 3.12.2008 kl. 08:20
Knús Stína mín... Ég get þó unnið en ekki þú.. þar er munurinn.. ekki satt.... Heppin að vera búin að fara í aðgerðina... Hvaða ..hvaða þetta er bara innan við 2 tímar.. Og þú veist nú hvernig Danir vinna... svo þetta ætti ekki að vera erfitt.. kærleiksknús Stína mín..
Dóra, 3.12.2008 kl. 08:25
Sæl Dóra mín, mér sýnist að þetta bak þitt sé ekki upp á marga fiska, held að þú ættir ekki að vinna mikið, en kannski verður bara hressandi að fara svolítið út og hitta fólk, 2 tímar eru fljótir að líða. Vona að vel gangi hjá ykkur Stínu báðum, kærleikskveðja til þín elskan mín
Ásdís Sigurðardóttir, 3.12.2008 kl. 10:55
kveðjur og góðar óskir þér til handa
Guðrún Þorleifs, 3.12.2008 kl. 20:56
Gangi þér Dóra mín. Farðu vel með þig Kærleikskv,
Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 3.12.2008 kl. 21:49
Gangi þér vel með vinnuna Dóra min,passaðu bara vel að ofgera þér ekki,sendi knús til Esbjerg
Líney, 3.12.2008 kl. 23:02
Takk stelpur mínar fyrir að hugsa svona fallega til mín... Kærleiksknús til ykkar allra
Já held að ég hafi bara gott að því að komast út úr húsi til að fá tilbreytingu í lífið og hugsa um eitthvað annað en vandamál líðandi stundar... Ásdís mín...
knús Dóra
Dóra, 4.12.2008 kl. 07:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.