Frábær sigur hjá mér

Já í gær vann ég frábæran sigur á kommúnunni hér í gær... Og ég er alveg í skýjunum yfir því.

Málið er að ég hef alltaf verið með helbredstillæg sem er svona afsláttur upp á 85% af lyfjunum mínum. Já þau verð ég víst að taka inn allt mitt líf og má ekki stoppa. Crying Nema að þetta eru dýr lyf hér bara um 1800 dkr 100 stk og dugar það mér í 50 daga. Samheitalyf er svona 80 % ódýrara en ég er búin að prófa það og það virkar því miður ekki eins á mig. Hefði sko alveg viljað þetta ódýrara.

Nema að gera þetta ekki eins langt og það er í raun og veru.. þá þarf að sækja um þetta helbredstillæg fyrir áramót hvert ár. Lög sem voru sett á í fyrra hér hjá kommúnunni. Nú en kommúnan var lokuð milli jóla og nýtt árs og ég ætla sko aldrei að læra það þó ég sé búin að vera hér í næstum 6 ár.  Nú á fyrsta degi nýs árs hringi ég í kommúnuna og er númer 22 í röðinni .. ég bíð og bíð og næ svo sambandi við mann sem sér um þetta núna.. Nú hann segir að ég sé of sein að sækja um.. Og ég læt hann vita að það sé voða erfitt að sækja um þegar það sé lokað hjá þeim..En hann lætur mig vita að hann skuli redda þessu fyrir mig og senda mér..

Jæja svo bíð ég og og fæ svo bréf og í því stendur að ég fái helbredskortGasp ég var nú ekki sátt þar sem þetta kort gerir það að verkum að þú verður að leggja út fyrir öllum lyfjum og svo verður þú að fara með kvittun og fá það greitt eftir dúk og disk.. Vá, hvað er nú að hugsaði ég.. svo ég hringi...

svarið var lögin hafa breyst og þú veðrur að gera þetta svona núna og svo greiðum við þér.. Nei, segi ég þetta er sko ekki rétt ég á rétt á helbredstillæg fyrir utan að lyfin mín  eru svo dýr að ég get ekki lagt út fyrir því sjálf. Og ég vildi fá skýringu á því hvað hafi breyst.. já þetta er sko á milli apóteksins og kommúnunnar..Og svo kemur þú frá Íslandi Gasp 

Ég sagði við manninn á línunni sem skrifaði undir bréfið NEI ég hef alltaf haft þetta helbredstillæg og ég hef alltaf komið frá Íslandi þessi ár sem ég hef búið hér. Ég er ekki bara að koma frá Íslandi núna 2009.  GaspJá svona eru lögin þú átt ekki rétt á þessu... Jæja góði ég fékk þetta í geng 2003 eftir að þið neituðu mér og ég áfríaði á sínum tíma og fékk þá þetta bara sent í pósti.. Já góða og maðurinn vildi ekki gefa sig... já ég fer með þetta lengra segi ég við manninn hinu megin á línunni. Já, þá gerir þú það bara og vertu blessuð og svo skellir hann á mig.Gasp Tek fram að ég var salla róleg allan tíman... LoL

Jæja eins og mér er einni til gef ég mig sko ekki og á miðvikudaginn fer ég niður í kommúnu með bréfið. Tek mér númer og svo er komið að mér.. ég bendi manninum á þetta og segi við hann að þetta sé ekki rétt.. Nei vitið til þá er þetta herrann sem skellti á mig... Og hann segir það var ég sem talaði við þig... Gasp Jæja góði varst það þú sem skelltir á mig.. maðurinn fer að roðna og skammast sín greinilega þegar ég er komin þarna sjálf.. Og fer að segja mér að eftir að hann hafi talað við mig þá hefði hann rætt við sína kollega og niðurstaðan er bara sú að ég á ekki að fá þetta helbredstillæg Gasp Og ekki gefur Dóra sig bendi honum á bréf sem ég fékk frá kommúnunni dagsett 19 des 2008 um að ég eigi rétt á helbredstillæg og hann verður voða vandræðalegur.. og bendi honum líka á dönsku lögin(Kapitel IX nr 87 ) sem segir að Íslenskir ríkisborgarar eigi að njóta sama rétta og Danir. Já þetta þekki ég ...Undecided segir hann já en af hverju er þá ekki farið eftir því... Woundering ?

Já nú fer að renna á manninn 2 grímur.... hann spyr mig hvort hann megi taka ljósrit af þessu bréfi sem hann sendi mér og vill taka niður símanúmerið mitt.. jú ,jú það fær hann og svo lofar hann mér að hringja á fimmtudagsmorguninn.. Og við það kveð ég kommúnuna...

Nú það kemur fimmtudagur og ekki hringir hann.. Ég bíð bara róleg hugsa hann hlýtur að hringja á morgun... Já sem hann svo geir...

Þá er nú aldeilis komið annað hljóð í hann LoL  Hann spyr mig hvað lyfin mín sem eru búin að liggja í apótekinu frá 29 des kosti... Ég er nú ekki með töluna alveg á hreinu. Þá segir hann getur þú hringt í apótekið og fengið það uppgefið og svo hringi ég aftur eftir  10 mín .. Já,já það get ég  nú ég hringi og fæ að vita að ég á að greiða 2074 dkr... Gasp Ótrúleg því þetta lyf fæ ég frítt á Íslandi... Og hef verið að greiða einhverjar krónur fyrir þegar ég er með þetta helbredstillæg.

Nú svo hringir hann aftur og tilkynnir mér að þeir ætli að greiða þetta fyrir mig Gasp ég bar hvað ?

Já viltu að ég leggi þetta inn á reikninginn þinn en þá veður þetta ekki komið fyrr en á miðvikudaginn eða viltu koma sjálf og ná í þetta..

Ég helt það nú ég vildi nú koma og ná í þetta og sækja lyfin með það sama. 

Já þegar þú kemur tekur þú númer og lætur svo kalla á mig..

Nú ég fer og geri þetta allt og kona þarna hringir í hann .. hann er komin með það sama.. Tekur mig svona afsíðis og bíður mér sæti ... voðalega kurteis eitthvað.. Og biður mig að skrifa undir... og réttir mér svo blaðið og segir mér að fara til gjaldkerans... og sækja peninginn... Og óskar mér svo góðrar helgar og kveður...Gasp ég stóð þarna með *tárin* í augunum og var bara ekki að trúa þessu.

Ég var sko ekki að fara fram á að þeir borguðu þetta fyrir mig ... langt því frá...

En allt í einu stóð ég þarna með 2100 dkr í höndunum og gat leist út lyfin mín.. enda eins gott ég var á síðustu töflunum.... Og þá búin að vera að taka 1 einn daginn og 2 næsta dag, spara smá sem kostaði það að ég er búin að sofa út í eitt.

Nú næst þegar ég á að leysa út lyfin þá á ég að tala við hann... Grin

Er þetta ekki bara að segja mér að ég á rétt á þessu helbredstillæg en hann var bara búin að segja NEI og vill ekki gefa sig... Já þarna hitti andskotinn þá ömmu sína .. þegar hann á að glíma við Dóru.Angry

Ég spurði líka í apótekinu hvað hafi breyst með þetta  helbredstillæg og svarið var EKKI NETT ! Gasp

En ég sigraði og ég er svo ánægð með þennan sigur... Smile  Grin

Ég er líka búin að vera að setja mig í samband við Halló Norðurlönd.

Viðurkenna þeir að síðan þetta hafi ekki komist í gagnið almennilega fyrr en í fyrra .. Dóra veit allt um það... Enda vantar margt á þessa síðu.. meðal annars allt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþegar.. Og ætlaði hún að koma því til vefstjóra.. Og vona ég að breyting verði þar á.

Skrifaði þeir og sagði þeim að ég væri búin að búa hér í næstum 6 ár. Og hvað ég væri óhress með það að öryrkjar og ellilífeyrisþegar væru alltaf á svo gráu svæði.. nú værum við að ganga inn í 2009 og það ár ætlaði ég að nota til að vinna í okkar málum... svo við gætum gengið glöð inn í árið 2010 ef Guð lofar... Smile 

Ég fékk sem sagt þetta svar... : Mikið er gaman að heyra frá þér. Þú átt örugglega eftir að greiða leiðina fyrir marga.

Tengil inn á Norðurlandasamninga er að finna á heimasíðu okkar
www.hallonorden.is undir ”Samningar og reglur”, neðarlega til hægri á upphafssíðunni (þegar þú ert búin að velja tungumál).
Ég hef bara því miður ekki yfirsýn yfir það hvort um er að ræða alla Norðurlandasamninga en hægt er að senda fyrirspurn á vefritstjórnina sem heldur út þessari síðu og hvet ég þig til þess að gera það.
Ég vil líka benda þér á síðuna
http://www.nordsoc.org/is/ en þetta er Norræna vefgátt um almannatryggingar. Eflaust finnurðu mjög marga samninga þar sem henta þér vel í starfi þínu (tengil inn á þessa síðu er líka að finna á síðunni okkar, undir "Mikilvægar vefslóðir").

Vefsíðan okkar er í stöðugri þróun og komst ekki almennilega í gagnið fyrr en á síðasta ári. Við tökum með glöðu geði á móti ábendingum um það sem mætti betur fara og er ég alveg sammála þér í því að bæta megi við upplýsingum fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega. Ég skal sjá um að koma þessari ábendingu áfram á réttan aðila.

Gangi þér vel með baráttuna og gaman væri að heyra af því sem þú ert að gera.

Ég er auðvita búin að senda fyrirspurn á vefstjórann.. Mig vantar Norðurlandasamninginn á bæði Dönsku og Íslensku og þá allan samninginn ekki bara hluta af honum...

Því ég ætla að reka þennan samning ofaní þetta fólk hjá kommúnunni og láta þetta lið lesa þetta... Happy

Annað sem ég ætla að gera og bið ég ykkur sem þetta mál eða þekkið eitthver sem er í þessari stöðu að vera öryrki eða ellilífeyrisþegi á Norðurlöndunum og hafið fengið neitun frá kommúnunni ..þá sama hvaða mál það er að setja sig í samband við mig !

Því ég ætla að fara með mál okkar ef við erum nógu mörg til umboðsmanns Alþingis og láta fara yfir okkar mál enda komin tími til.. Við getum ekki eytt öllu okkar lífi í að berjast fyrir rétti okkar og fá NEI þegar við eigum rétt..

Held að ég hafi þetta ekkert lengra... Er orðið allt of langt og enginn nennir að lesa þetta. Trúi ég.... ég sjálf nenni ekki að lesa svona langar færslur.. En ég varð að koma þessu frá mér...

Kærleikur til ykkar og eigið góða helgi..  Dóra Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Dóra min, oft borgar sig að berjast, alla vega fyrir sumu, það' sýnir sig her. Mundu eftir mer Dóra min. Auðvita nennir fólk að lesa bloggið þitt þó langt sé, ég tala nu ekki um þegar að öryrkjar eiga i hlut. Þú ert frábær manneskja elsku Dóra min. Kærleiksknus

Kristín Gunnarsdóttir, 17.1.2009 kl. 10:21

2 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Blessuð Dóra mín, þetta er flott þarna sýnir það sig enn og aftur að við erum fólk sem fer ekki í skotgrafirnar þó svo að móti blási. Við berjumst með kjafti og klóm fyrir okkar rétti, við vitum að við förum með rétt mál og látum þessa pappíridióta éta ofan í sig þeirra vitlausu túlkun á lögunum. Það að lenda í þvi að verða öryrki hvar sem þú ert er töfft nok en að þurfa endalaust að berjast fyrir því að lögin séu haldin hvað okkur geldur  er efni í margar og langar greinar, he he . satt að flesti nenna ekki að lesa greinar sem hafa með öryrkja að gera , líta meira á okkur sem svona plagánder sem aldrei erum ánægð. Enn þeir skulu hugsa dæmið það getur hver sem  er misst heilsuna og  geta ekki unnið, að þurfa að sækja sinn rétt með lögin í höndunum,það hef ég og þú og margir aðrir líka en ekki vil ég neinum þurfa að ganga í gegnum þetta helvíti,, JaJa þar kom skíturinn Dóra mín sem þig dreymdi. Þú ert hörkutól og átt það skilið að fólk lesi pistlana þína hvar sem þeir byrtast. Gangi þér vel kæra og stórt baráttuknús ha ha þarna fékkstu eina langa grein með engum greinarskilum.. Kv frá Norge

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 17.1.2009 kl. 10:46

3 Smámynd: Hulla Dan

Þú ert lang flottust

Hulla Dan, 17.1.2009 kl. 11:39

4 Smámynd: Helga skjol

Júbb júbb, ég nennti alveg að lesa alla færsluna þína og finnst það frábært hvað þú ert/ætlar að leggja á þig fyrir aðra sem eru í sömu sporum og þú, ÆÐISLEGT.

Knús inní góða helgi

Helga skjol, 17.1.2009 kl. 12:11

5 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Kæra Dóra þú ert alveg frábær.þú minnir mig á Sigrúnu dóttir mína sem býr í Noregi,hún er svona baráttukona eins og þú,hún er efst á bloggvinalistanum mínum ef þú vilt hafa samband við hana,hún hefur þurft að berjast fyrir börnin sín,reyndar held ég fengið mjög góða þjónustu .þar sem hún býreigðu góða helgi ljúfan

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 17.1.2009 kl. 14:44

6 Smámynd: Líney

Hallejúja  og Amen

Frábært hjá þér. Þegar  þú verður komin með þetta  allt á hreint  fyrir mig og alla hina sem langar að flytja út en  þora ekki að taka stökkið, þá tek ég málið til endurskoðunar,ég er ein af mörgum sem  þora ekki að standa upp í hárinu á fólki,ég  alalvega lyppast  bara niðurrisaknús til þín.

Líney, 17.1.2009 kl. 17:19

7 Smámynd: Dóra

Takk stelpur mínar..  ég er líka ekkert smá stolt af( henni Dóru minni núna) mér eftir þetta .. já ég er stolt að þetta hafi tekist.. á hörkunni hefst þetta allt.. Enda baráttukona hún Dóra  kærleikur á ykkur allar Dóra

Dóra, 17.1.2009 kl. 19:09

8 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Dugleg hún frænka mín og frábært hjá þér stelpa

Arinbjörn Kúld, 17.1.2009 kl. 22:30

9 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

flott blogg hjá þér Dóra mín  .þú ert hetja knús þín Gunna

Guðrún unnur þórsdóttir, 17.1.2009 kl. 23:19

10 Smámynd: Dóra

Takk frændi ... gaman að sjá þig hér .. er þetta í ættinni þessi harka eða hvað... :D ?

Ertu komin heim frá Englandi og hvernig gengur ?

Helga.. nei þetta er rétt hjá þér.. og ég veit dæmi um það að þeir sem dæma okkur harðast geta líka lent í því og það ílla því miður eða eitthver náin :( ... þetta fólk sem er með svona fordóma út í okkur væri betra að þega... En það eru auðvita alltaf svartir sauðir þarna inn á milli sem misnota þetta og ég er sko ekki ein af þeim... ég er búin að fá smá vinnu hér... vinnu sem ég má ekki vinna :( og frábært að vera komin smá út á vinnumarkaðinn eftir 10 ár ( hef alltaf verið að leita .. í þessi 10 ár en hver vill fá aumingja í vinnu ? )...en hvað gerir maður ekki þegar herðir að.. Hér er allt gefið upp... og ég hef alltaf borgað mína skatta og skildur...Og kem alltaf til með að gera það...

knús á ykkur og kærleikur Dóra

Dóra, 17.1.2009 kl. 23:21

11 Smámynd: Dóra

Takk Gunna mín það er þú reyndar líka kærleikur til þín  

Dóra, 17.1.2009 kl. 23:22

12 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góð!!!

Gangi þér vel

Guðrún Þorleifs, 18.1.2009 kl. 00:26

13 identicon

Þetta var skemmtileg saga og til hamingju með þennan sigur.  Það er alltaf gefandi þegar réttlætið sigrar, ekki síst á þessum tímum.  Þú stóðst þig bersýnilega frábærlega og sýnir okkur hinum reyndar að því miður þarf oft að berjast af hörku fyrir bæði réttindum sínum og réttlæti.

Lifi baráttuandinn.

Kær kveðja til ykkar allra

Unnur Sólrún

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 13:24

14 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Frábært hjá þér.Ég las allt. Kveðja

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 18.1.2009 kl. 15:16

15 identicon

Flott hjá þér Dóra ekki gefa neitt eftir.

Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 15:02

16 Smámynd: sur

Thú átt hrós skilid fyrir thetta thad borgar sig ad standa á sínum rétti. Og vel bodid hjá thér ad vilja hjálpa ödrum.

Knús

sur, 19.1.2009 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband