Góðar vinkonur

Við erum bar sætar saman...

 

Já það er óhætt að segja það að Gréta M mín hafi verið ánægð í gær þegar hún kom heim úr  skólanum... Enda enginn önnur en Beyly hér hjá okkur á meðan Stína bloggvinkona fór að slappa af í Þýskalandi... Smile

Gréta M mín er svo búin að dekra við Beyly að ég veit ekki hvernig þetta verður þegar kemur að því að Beyly þarf að fara heim...Crying

Gréta M mín vill bara hafa hana lengur...Hún er alveg í skýjunum með þetta og var staðin hér upp kl 06 til að fara út með hana.. Já það þurfti ekki að reka á eftir dóttlu minni í morgun að fara í föt ... þvílíkur munur... Svo kom hjá henni ..sko mamma sjáðu svona væri þetta ef ég ætti svona hund... Æi, ekki nóg með að hún sé með mömmuveiki þá er hún búin að ganga með hundaveikina í næstum 2 ár.. LoL

Já, svona er þetta það er ekki nóg að eiga hund maður verður víst að hafa efni á því og ég viðurkenni það alveg að ég hef það ekki.. Fyrir utan að ég er ekki á bíl... er bara á hjóli og í strætó.

Nú það kostar að fara með hund til læknis og sprautur kosta sitt + trygging ofl.Crying

Ég er búin að segja við Grétu M mína að hún geti fengið sér hund þegar hún flytur að heiman.. Þó hún sé búin að gefa þá yfirlýsingu að hún ætli ekkert að flytja frá mömmu sinni..

Stundum held ég að það hafi gleymst að klippa á naflastrenginn á milli okkar...

 

En í dag ætla ég að snúa mér að töskugerð og vera hér eitthvað fram yfir hádegi í því.

Svo er auðvita vinna kl 17 Smile elska að komast svona út Smile

Kærleikur og risaknús til ykkar ... Dóra Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 12:30

2 Smámynd: sur

Ha ha ætli Beyly vilji nokkud fara heim med Stínu Ég sé ad og les ad hún hefur heldur betur verid í dekri thessa daga. Líka ædislegt ad Gréta fékk svona mikid út úr thessu.

Kær kvedja og knús

sur, 9.1.2009 kl. 15:42

3 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Notalegt hjá ykkur

Varstu búin að sjá dóminn í málinu sem þú bloggaðir um hér á undan? Það er ekki öll vitleysan eins!!!

Guðrún Þorleifs, 9.1.2009 kl. 20:33

4 Smámynd: Dóra

Takk stelpur mínar hér er nú smá söknuður eftir að  Beyly fór...

En dóttlan og Beyly voru mjög sáttar...

Já Guðrún ég er búin að sjá þennan dóm .. það er bara ekki í lagi með þetta kerfi ... Bara rosalegt ... knús stelpur og takk fyrir kvittið kærleikur frá mér Dóra

Dóra, 9.1.2009 kl. 20:58

5 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Æi Dóra mín,ég á svona stelpur sem voru með hundaveiki,þegar þær voru litlar,lét meira að segja eftir þeim að fá hund TVISVAR og á hvern kom svo að hugsa um dýrið,já einmitt MIG stattu fast á þínu ljúfan þetta gengur yfir eigðu góða helgi ljúfan mín

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 9.1.2009 kl. 23:46

6 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Elsku Dóra min, aftur þúsund þakkir fyrir að passa Beyly. Þær eru bara flottastar Greta M og Beyly. Það var sko dekrað við Beyly hjá ykkur, það sýndi sig best þegar að ég kom að sækja hana, vildi bara heilsa mér og svo var hun bara hjá ykkur, manni getur nu sárnað þó að maður gráti ekkiHeiri í þér i dag Dóra min

Kristín Gunnarsdóttir, 10.1.2009 kl. 08:09

7 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Kæra Dóra min. Gott nýtt ár til þín og þinna, megi nýja árið fara vel með þig ljúfan. Hafðu það sem allra best, kv Sirrý.    

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 10.1.2009 kl. 11:54

8 Smámynd: Dóra

Takk stelpur mínar... fyrir kvittði hér...  Já Beyly er bara æði og Gréta saknar hennar sárt... Annars sagði ég við Grétu að hún mætti skamma þig en ekki mig fyrst þú komst ekki í kvöld aftur hehehee

Knús stelpur Dóra

Dóra, 10.1.2009 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband