Svo er að krossa fingur fyrir okkur

ég veit ekki hvar þetta á eftir að enda... Ég er búin að vera að aura saman fyrir leigunni... í gær var 1100 dkr yfir 27,000 íkr.. Það er eitthver vegin svo að ég auminginn fæ ekki gjaldeyrir nema að fylla út fullt af pappírum og það læt ég bara ekki bjóða mér.

En ég er heppin að hafa 2 kort sem ég get tekið út af... Og það segir að ég sé komin með 2200 upp í leiguna og reikningana ... vantar ennþá 1800 dkr.. Svo ég þarf að fara aftur þegar 24 tímar eru komnir...

 

Að hugsa sér að hér áður gat maður tekið út hátt í 3000 dkr í einu...

Þetta er svo grátlegt ... Maður á bara ekki til orð hvernig hægt er að láta fara með sig... Ég er búin að fá svo mikið meira en nóg af þessu bulli... Devil

Hafið góðan dag... Nú er að vona að krónan verði okkur í hag.. og mér þegar líður á daginn... eða þegar 24 tímarnir eru liðnir og ég get farið í bankann aftur...

 

Dóra Dk Heart


mbl.is Takmörkuð fleyting krónunnar hefst í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband