Hvað er að gerast með menn þarna í Noregi

Þetta fann ég á www.dv.is  bara ógeðslegt... Hvað verður það næst ?

 

Kristinn Jens Kristinsson, fimmtugur Íslendingur, var dæmdur fyrir hrottalega nauðgun í Arviksand í Noregi. Hann áfrýjaði málinu sem var síðan þingfest í lögmannsréttinum í Tromsö. Kristinn Jens var einnig fundinn sekur um brot á vopnalögum og fyrir að hafa ekið ökutæki undir áhrifum áfengis en hann var ölvaður þegar hann reyndi að stinga lögregluna af.

Kristinn Jens er ókvæntur, á fjögur uppkominn börn. Hann er öryrki og hefur búið í Noregi undanfarin ár.

Nauðgunin átti sér stað í smábænum Arviksand í Noregi en þar búa um hundrað og fimmtíu manns. Kristinn var gestkomandi í húsi konu sem hann eitt sinn átti í ástarsambandi við. Konan grunaði hann hinsvegar um framhjáhald og hafði bundið enda á sambandið í gegnum textaskilaboð einni viku fyrir ódæðið.

Kristinn Jens bar fyrir dómi að konan hefði ráðist á sig þegar hann hefði sagt að það væri betra að stunda kynlíf með viðhaldinu. Dóminum þótti það hinsvegar ekki trúverðugt. Þá mundi Kristinn Jens ekki eftir því hvað gerðist eftir það.

 

Dæmir hver fyrir sig... Kveðja frá Dk Dóra


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Það er nu bara ekki í lagi með þetta drasl. Eigðu góðan dag Dóra mín. Kærleikur til þín og knus

Kristín Gunnarsdóttir, 27.11.2008 kl. 10:30

2 Smámynd: Líney

Æ úff aumingja fólkið

Líney, 27.11.2008 kl. 12:33

3 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Blessud Dora min, sagt dad adur og segi aftur. Gelda dessa andsk..og læsa dem inne og kasta lyklinum.  Hafdu dad annars sem allra best.  Kv. Sirry

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 27.11.2008 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband