Færsluflokkur: Dægurmál

Hvað er að gerast með menn þarna í Noregi

Þetta fann ég á www.dv.is  bara ógeðslegt... Hvað verður það næst ?

 

Kristinn Jens Kristinsson, fimmtugur Íslendingur, var dæmdur fyrir hrottalega nauðgun í Arviksand í Noregi. Hann áfrýjaði málinu sem var síðan þingfest í lögmannsréttinum í Tromsö. Kristinn Jens var einnig fundinn sekur um brot á vopnalögum og fyrir að hafa ekið ökutæki undir áhrifum áfengis en hann var ölvaður þegar hann reyndi að stinga lögregluna af.

Kristinn Jens er ókvæntur, á fjögur uppkominn börn. Hann er öryrki og hefur búið í Noregi undanfarin ár.

Nauðgunin átti sér stað í smábænum Arviksand í Noregi en þar búa um hundrað og fimmtíu manns. Kristinn var gestkomandi í húsi konu sem hann eitt sinn átti í ástarsambandi við. Konan grunaði hann hinsvegar um framhjáhald og hafði bundið enda á sambandið í gegnum textaskilaboð einni viku fyrir ódæðið.

Kristinn Jens bar fyrir dómi að konan hefði ráðist á sig þegar hann hefði sagt að það væri betra að stunda kynlíf með viðhaldinu. Dóminum þótti það hinsvegar ekki trúverðugt. Þá mundi Kristinn Jens ekki eftir því hvað gerðist eftir það.

 

Dæmir hver fyrir sig... Kveðja frá Dk Dóra


Hvað vantar við þessa frétt

Jú að starfsfólki hafi verið boðið að vinna á hálfum launum út uppsagnartímabilið..

Það er bara stappað á fólki eins og skít.. Devil


mbl.is Nóatún segir upp og hagræðir
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Þegar ég var barn....

Þá var þetta pínt ofan í mann úfff í sveitinni rétt hjá Höfn í Hornafirði.... finn ennþá lyktina af þessu .... Angry
mbl.is Selveiðum að ljúka við Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband